View case history...

Flúðu húsið vegna GSM-sendibúnaðar Iceland
Contamination level: Severe illness! Forced to abandon a home.
Author: Helga Created: 16 Sep 2009 Updated: 16 Sep 2009 Viewed: 4638 time(s)
Hjón á Egilsstöðum „krossleggja fingur" sína og vona að ekki verði leyft að gangsetja að nýju GSM-sendi Vodafone ofan á tanki skammt frá heimili þeirra.

This case file has 1 entry and no comments yet

Á meðan kveikt var á sendinum fundu þau fyrir miklum óþægindum og fluttu að lokum út úr húsinu. Created: 16 Sep 2009
„Þetta var áreiti í miðeyra og á húð, sem endaði í höfuðverk og þegar mest var fann maður fyrir ógleði líka," segir Fjóla Malen Sigurðardóttir,
íbúi á Egilsseli 17.

„Við vorum tvær fjölskyldur sem ætluðum að búa þarna í sumar en við gáfumst upp á því.
Ég fann fyrir þessu fyrst og virtist vera næmust fyrir þessu, en síðan fundu þetta allir, bæði gestir og aðrir," segir hún.

Sumarið 2008 sáu íbúar í Egilsseli að verið var að setja upp mastur ofan á tank Hitaveitu Egilsstaða og Fellabæjar á hæð fyrir ofan götuna. Fjarskiptabúnaður er leyfisskyldur og var ekki gert ráð fyrir slíkum búnaði í deiliskipulagi hverfisins.

Íbúarnir kvörtuðu og fengu þau svör frá bænum að Geislavarnir ríkisins og Vodafone teldu geislun rafsegulsviðs sendisins vera vel undir íslenskum viðmiðum.

Upp úr áramótum fór Fjóla að finna fyrir óþægindunum.

Í apríl ræddu hjónin við byggingarfulltrúa sveitarfélagsins, sem taldi óþægindin ekki geta stafað af loftnetinu.

Í maí leituðu þau til Heilbrigðiseftirlits, sem vísaði á Geislavarnirnar.

Í lok maí báðu hjónin fyrirtækið Hélog, sem mælir rafgæði og -truflanir, að kanna málið. Íbúðarhúsið stóðst allar mælingar, en margt þótti ábótavant við frágang sendisins.

Í júní var byggingarleyfi sendisins fellt niður og hefur verið slökkt á honum á meðan hann er grenndarkynntur.

Fjóla hefur ekki fundið fyrir óþægindum síðan.

„Það er skrýtið að þetta sendir út frá sér svona miklar bylgjur og það virðist engin eftirlitsskylda vera til staðar, þótt þeir séu að úða mengun út í andrúmsloftið.
Hins vegar má ekki keyra bíl úti á götu án þess að hann sé fyrst mengunarmældur," segir Fjóla.

Ekki náðist í Eirík Björn Björgvinsson, bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs.

klemens@frettabladid.is

Mynd/Fjóla Malen Sigurðardóttir
http://www.visir.is/article/20090915/FRETTIR01/993574946
No comments yet.   Click here to write a comment.